Kata
Dagsetning
19. maí 2012
Klukkan
09.09.2007 20:41:42 / Kata

lalala

Jæja núna á að taka þetta og reyna að halda rétt á spöðunum og skrifa reglulega hérna fyrir útlandafarana.. hehe

Allt gott að frétta úr mínu lífi, nýnemaferðin í lögfræðinni var á föstudaginn og á meðan að allir voru að fara sparlega í þetta til að missa ekki andlitið var ég manneskjan sem var svo viss um að hún kynni með áfengi að fara og sturtaði í mig linnulaust, þar sem ég var viss um að áfengisþolið væri meira en hjá hinum.... 8) en þrátt fyrir þetta afrekaði ég ekki að vera fullasta manneskjan á svæðinu, það var ælandi maðurinn sem ég tók að mér að halda á út um allt svæðið og ég taldi það aldeilis ekki eftir mér að færa hann frá A til B eftir því sem fólki fannst sniðugast að hann væri.... og vílaði það ekki fyrir mér að skella mér í verkstjórahlutverkið og skipa fólki í stöður, þetta fékk ég líka að gjalda fyrir með þvílíkum harðsperrum daginn eftir því að maðurinn var alls ekki í léttari kantinum.... hahah  :$

Síðan var það bara rólegheit á laugardaginn og þar spilaði samviskan aðallega inní... ekki það að maður treysti á einstaka fólk til að halda uppi heiðri sínum en af sögunum að dæma var fólk ælandi upp allan laugaveginn og kastandi sér uppí til mömmu og pabba eftir djammið...

En síðan er það bara einbeiting út september mánuð til að ná innganginum, ekki það að það eru alls konar hindranir á vegi mínu svo sem uppskeruhátíð hjá skólanum og svona og þar sem ég hef uppskorið margt í þessum 4 eða 5 dögum sem ég hef mætt þá held ég að maður verði að halda upp á það, svo sakar ekki að það er frítt áfengi....

Síðan er það það allra besta að það er verið að reyna að plata mig á dansnámskeið, það er verið að tala um afburðar swing dans frammistöðu okkar krakkana í ungmenningunni um allan bæ svo að háskólinn er að spá í að gera eins, þannig að maður er að velta því fyrir sér hvort maður eigi að fara að sýna fólkinu hvernig á að gera þetta...... 8)  

Annars ætla ég að leyfa mér að herma smá eftir Önnu Rut sem er alltaf að benda á hversu fótógenísk hún er og deila með ykkur nokkrum sérstaklega góðum af sjálfri mér...

   

Þið trúið því kannski ekki en allar þessar gúrme myndir voru teknar á föstudaginn og eru mjög lýsandi fyrir mitt ástand í þessari ferð....

en annars er það að frétta að Nína og Halli yfirgáfu landið í dag og koma ekki aftur fyrr en 4. desember, þau ætla bara að vera að kenna ameríkönum hvernig hlutirnir eru gerðir á íslandi þangað til......

en þetta er nóg í bili.... bles :klikk: 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 11:04:43 / Kata

:)

Jæja kominn tími á smá yfirlit yfir það sem hefur verið að gerast hjá mér síðustu daga...

Helgarnar eru búnar að vera standa fyrir sínu, afmæli hjá Önnu Lind og Pöttru á Domo kom skemmtilega á óvart eftir að ég og Ásta hrundum ofan í glösin og það nokkur.. rifum okkur síðan ofar í bæinn og fylgdumst að allt kvöldið en týndum hvor annarri eftir að staðirnir lokuðu :$ Síðan man maður kannski ekki greinamun á öllum bæjarferðunum nema síðustu sem ég fór, eftir afmælið hjá Önnu og Ástu þegar fólk af öllum þjóðflokkum var búið að missa sig í bollunni en fá sér samt alltaf reglulega bjór á milli, rífa upp tuskur og binda þær utan um hendina og kalla það fyrirliðaband, fara út að reykja með öllum sem reyktu í nánasta nágrenni og gera alls kyns óskunda sér og öðrum til skemmtunar var kominn tími til að fara í bæjinn.  Flestir létu sér það nægja að vera áfengislausir á leiðinni þangað en við Nína og Sandra vorum með bolluávexti í glasi og hökkuðum þeim í okkur og fundum áhrifin ekki svífa yfir fyrr en við komum út úr bílnum.... kvöldið endaði bara eins og það endaði óþarfi að vera fara eitthvað nánat út í það nema að ég stakk af að vanda og þegar ég kom aftur voru örfáar hræður eftir sem ég þekkti...

    

En svo er ég líka byrjiuð í skólanum, sem er ekki frásögufærandi nema fyrsta daginn mætti ég algjör spaði tilbúin í allt..:!: síðan var sagt hvað ætti að lesa fyrir næsta dag og eins og vanalega á fyrsta skóladegi var ég ekki búin að lesa neitt, en það átti sem sagt að lesa einn kafla... ég hló bara framan í hætturnar en þegar ég uppgötvaðu að þessi eini kafli var 80 bls og ég skildi mjög lítinn part af honum fór að renna af mér gleðin...:S  en þetta á örugglega eftir að venjast, mér finnst bara stórkostlegt að hugsa til þess hvað við kjánarinir vorum að gera í ms í 4 ár, án gríns þau skemmtilegustu í lífi mínu myndi gefa margt fyrir að vera þar ennþá (allavegana í U-inu, væri ekkert á móti því að sleppa tímunum)...

En annars eru bara leiðindi á öllum Hrefna farin út, Nína og Halli fara út á þriðjudaginn, Anna og Ásta eru að plana heimsreisu og aðrir eru í skóla eða að vinna... pifff

en þar sem ég er búin að vera mjög ódugleg með myndavélina þá á ég ekki mikið að svoleiðis... :S en ég skal reyna að bæta þetta Hrefna mín...;)

En jæja bless í bili..... 8)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 02:14:34 / Kata

Sumarið er búið... :(

Mér þykir leiðilegt að vera boðberi slæmra fregna en þið sem voruð ekki búin að átta ykkur á þessu máttuð alveg fara að gera það.... 8)  Ég er að klára síðustu vinnuvikuna mína núna næsta þriðjudag sem er mjög fínt síðan tekur við smá sumarfrí og síðan bara skólinn...

Ég var einmitt að fá þær skemmtilegu fréttir að ég á að leika blóm í einhverri sýningu hérna á lokaballinum fyrir krakkana... haha og syngja eitthvað lag, þetta var ekki alveg það sem ég hafði í huga... en þegar ég frétti að Pálína átti að leika geltandi villihund þá sætti ég mig við blómahlutverkið.... ;) 

 

Það eru ekki allir svo heppnir að verða vitni af þessum stórleik hjá okkur vinkonunum...

En síðasta vika leið alltof hratt eins og allar vikur upp á síðkastið þetta sumar er búið að fjúka frá manni... og ég er að gera mér grein fyrir því að fyrir utan það að hendast upp í bústað einstaka sinnum þá er það lengsta sem ég hef farið frá Reykjavík er hingað upp í vinnu...8| en í staðin fyrir að vera svekkja mig eitthvað á því hugsa ég þetta sem sparnað... og kaupi mér fullt af dóti til að bæta mér þetta upp...

en ég ætlaði bara að henda inn nokkrum orðum til að benda á þá staðreynd að meðan allir eru blindfullir einhversstaðar úti að skemmta sér

...þá er ég hérna inni upp í sveit að vinna....

þetta kallar maður sjálfsaga.... 8)

Ég var bara að skrifa hérna til að eyða tíma vegna þess að Pálína kjáni er í sumarskóla og ef ég er ekki að leysa verkefnin með henni þá hef ég ekkert að gera nema að horfa á sjónvarpið...:$ ég hef samt gert mér grein fyrir í sumar að ég kann íslensku ekkert sérstaklega vel... Pálína var að reyna að svara einhverrri spurningu í kvöld sem var svona: Allmörg íðorðasöfn hafa orðið til á liðnum áratugum.. Skoðaðu þau og segðu frá þeim sem þú telur að gætu komið þér að gagni í framtíðinni. Rökstyddu val þitt.  Veit einhver hvað er verið að spurja um??? hahaha þannig að þetta verkefni var leyst auðveldlega : Ég er ekki viss um hvort ég sé að misskilja þetta verkefni svona hrottalega eða hvað en ég myndi velja mér Læknisfræði, tannlækni og líffræði svo verði nú sem heilbrigðust í framtíðinni.  Þó svo að flest verkefni og próf sem við höfum hjálpast að við að gera hafa verið leyst í þvílíkum svefngalsa að annað eins hefur ekki sést lengi, er Pálína að fá alveg glimrandi einkunnir þannig að annað hvort hafa kennararnir húmor fyrir þessu eða að þetta er eitthvað einkennilegt..... 8)

En jámm þetta er komið nóg í bili.... bles.... :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 14:21:23 / Kata

Don´t cry because it´s over, smile because it happend

Jæja ég ákvað að kasta kveðju á liðið og láta vita að ég er á lífi.... ;)

Síðasta vinnuvika var með þeim erfiðari og skemmtilegri sem ég hef upplifað, og þó svo að hún sé löngu liðin þá ber ég ennþá þess merkis að ég hafi upplifað hana og skarta marblettum og sárum eftir bit, klór og klípur.... hver hefur ekki gaman að því..?? "morgnarnir" byrjuðu margir hverjir klukkan 3 (alveg merkilegt hvað þetta er árrisult lið) og svo var stanslaus keyrlsa til klukkan 9, hressleikinn alveg í fyrirrúmi....

og þið allt þetta fólk sem hélt að ég hefði þetta ekki í mér getið farið að éta ofan í ykkur orðin því að ég er að meika það í þessum bransa... á tímabili hélt ég að ég væri of óþolimóð í að vinna þarna en satt best að segja lekur af mér þolinmæðin sem aldrei fyrr og ég er búin að taka þetta út fyrir nýjar víddir.....:!: og svo skaðar ekki að ég hef aldrei verið með svona margar sögur í pokahorninu eftir eitt sumar...

Síðasta helgi var ansi skrautleg eins og fríhelgar eiga að vera... á föstudaginn skelltum við Pálí okkur út og á laugardaginn var partý hjá Dabba afmæliskalli... báðir dagarnir voru svo toppaðir með því að fara skúra morguninn eftir... ;)  á sunnudaginn skellti ég mér samt upp í bústað þar sem allt er að verða eins og hjá fólki og sýndi fólkinu hvernig ætti að gera þetta...

Svo er hróaskelduliðið komið heim og eg get ekki sagt annað en að ég sé pínu fegin ofan í alla öfunsýkina að ég hafi ekki farið því að fólk er á því að þetta hefði ekki verið fyrir mig, fékk meira að segja símtal frá fólki í annarlegu ástandi sem var statt á hátíðinni sem sagði mér að ég væri ekki þessi týpa ;)

En það sem eftir er að vikunni fer bara í að hafa það rólegt (eins og planið er í dag) og njóta lífsins... og fagna því að maður er lifandi og heilbrigður (sumarið er búið að vera undirlagt þeim fögnuði)

en jæja þetta er komið gott í bili.... bles.... :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 17:05:38 / Kata

Besti dagur lífs þíns er í dag ef þú notar hann rétt...!

Já það er komið að því að ég verði umkringd miðum með þessari og fleiri jafn skemmtilegum setningum á í VIKU.... ekki búast við að heyra í mér neitt að viti því að þetta verður erfiðasta vikan sem ég á eftir að vinna á þessum stað.... síðan er það down the hill from that...:!: (7, 9, 13)

Frívikan er búin að vera fín, ég komst yfir að hitta fleiri en í síðustu viku svo að þetta er allt að komast upp í vana og ég er farin að snúa sólarhringnum við á notime...!!

Síðustu helgi var tekið á því aðeins of hressilega á flöskudeginum, svo hressilega að ég er ekki til frásagnar um atburði kvöldsins.... þannig að ég hélt mig til hlés í drykkjunni á laugardeginum sökum veikinda sama dag... það var einmitt dagurinn sem ég hætti að drekka og snéri mér að heilbrigðari lífsstíl.... 8) Á mánudeginum fór ég samt í ríkið ef ég skyldi finna þá þörf að ég ætlaði að trappa mig niður...:$ skellti mér í útilegu með vinnunni en sem betur fer voru allir orðnir svo fullir þegar við Pálína komum að við misstum áhugann á því að opna fyrsta bjórinn mjög snögglega og skelltum okkur bara hjem igen... Það var ekki fyrr en á miðvikudaginn sem bjórinn kom að góðum notum þegar ég skellti mér í vinnupartý.... ;) Annars er frívikan búin að líða alveg ógeðslega hratt og þunglyndistilfinningin streymir yfir mann þegar maður hugsar til næstu 7 daga lífsins, þe. vinna, sofa og borða einstaka sinnum þegar maður hefur tíma og orku til þess...

Svo fer að líða að því að allir yfirgefi landið og skelli sér á Hróa, en ég ætla að láta það vera... ég er ekki þessi tjaldmanneskja, finnst lítið spennandi við að liggja í tjaldi og fá ammoníakeitrun vegna þess hve nálægt klósettunum ég tjaldaði (ég er búin að vera að sannfæra sjálfa mig um að þetta sé réttur hugsunarháttur, en það er bara af því að ég verð að vinna þá eins og svo oft áður!!)

Annars gegnur bara glymrandi að búa ein (með Pálínu) fyrir utan smá minniháttar misskilning á milli mín og nánast allra heimilistækja í húsinu er þetta búið að vera fínt... :) bíllinn hefur líka komið að góðum notum... það er ekki slæmt að fá hús, bíl og hund gefins í smá tíma... 8)

En annars vil ég bara minna ykkur á að: fegursta blóm jarðar er brosið (önnur fleyg setning af veggjum reykjadals)

Bless í bili.... léttlynda og skemmtilega manneskjan Katrín....:P


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 14:41:36 / Kata

Bestasta frænkan í heiminum...!!

Í dag vann ég mér inn þann gífurlega titil að vera bestasta frænka í heiminum þegar ég gaf Hrafnhildi gullfiska og búr og allt tilheyrandi í afmælisgjöf... eftir miklar vangaveltur og enn meiri nafnaskiptingar komst hún að þeirri niðurstöðu að fiskarnir skyldu heita Katrín og Pálína.  Þetta er fyrsta nafna mín sem er skýrð svona í höfuðið á mér og ég er ekki frá því að það hafi fært okkur nær hvorri annarri, ég finn að ég gæti orðið þessi gullfiska týpa...

En nóg um fiska, frívikan byrjaði í dag... og þar sem ég fór úr einni vinnu í aðra og beint í þessi gríðarlegu kaup þá hef ég ekki enn komist í það að fara að sofa... en það er alltaf tími eftir 12 fleygði einhver fram þannig að ég þarf ekkert að flýta mér.

Vikan var furðu fljót að líða eftir helgina, ég kynntist mörgum æðislegum karakterum sem ég á ekki eftir að gleyma á næstunni og líka einhverjum sem maður tvistar bara til að gleyma.... um helgina verður samt slett úr klaufunum, síðan er ég búin að skrá mig í að passa hús og hund í 3 vikur sem er orðið annual thing síðan í fyrra.....:!:

En ég langaði bara að skrifa smá hérna fyrst að ég var í tölvunni....:p

en hittumst í bænum (haft eftir góðvini mínum frá Reykjadal)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 17:00:42 / Kata

7 dagar í frí...

Já maður er ekki byrjaður á törninni þegar maður er farinn að telja niður....:!:

Ég verð að viðurkenna það að eins vel og þessi vinna hljómaði áður en hún hófst, þá var þetta á smá misskilningi byggt..... ég hélt að ég væri svo mikil náttugla að ég færi létt með að vaka 7 nætur í röð og eiga samt orku eftir í að vaka smá yfir daginn......: Ég verð í fríi alla daga er setning sem án efa allir öfunduðu mig yfir, en þar sem fríið fer aðallega í að ná upp svefni og undirbúa sig fyrir næstu vakt telst það ekki beint sem "frí"....:$

En ekki það að vinnan sjálf er ekki svo slæm, við erum bara eitthvað að þvo þvottinn og baka á milli þess sem við athugum hvort það sé ekki í lagi með alla...  En helsti kosturinn við þetta starf er sá að ég þarf að eyða helmingi færri vikum í að óttast að ég hitti býfugla og geitunga á förnum vegi... því að þeir sofa á nóttunni að mér skilst....

Síðasta vika er búin að fara í alls konar snatt..... helsta fréttin er að ég sótti um háskóla, gerði það að vísu bara til að hafa þann möguleika opinn, en ef ekkert betra býðst verður það lögfræði í HÍ sem bíður mín í haust.... ég er svo spennt að ég get varla beðið eftir að drekkja mér í bækurnar.... 8|

Annars hef ég hugsað mér að halda áfram að hlæja framan í hætturnar og dansa á rósum þess á milli.....

þangað til næst... minns.... :klikk:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 21:46:13 / Kata

Jæja

Ég hafði sá tíma aflögu og setti inn myndirnar frá 18.maí (próflokadjamm) og 19.maí (afmæli Nínu og Erlu), ég var búin að setja fleiri en þær duttu út.... þannig að þær koma ekki strax...8)

en bles....

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 19:18:01 / Kata

Missing person

Hér með lýsi ég eftir sjálfri mér... ég er með rautt sítt hár, blá augu og svara nöfnunum: Katrín og Kata.  Ég hef verið týnd síðan á síðastalaugardag en þá var ég að útskrifast:!:

Stundum er ég aðeins of fyndin, en öllu gríni sleppt þá vil ég biðja alla þá sem ég er ekki búin að vera að svara, eða sinna sem skyldi afsökunar..... :$ og láta vita að núna er maður að fara að smella sér í vikufrí, ég er alveg búin að sjá það að eins skemmtileg og þessi vinna er þá eru frívikurnar skemmtilegasti hlutinn af henni (jafnvel þótt að ég hafi aldrei átt eina slíka áður)

Ætla ekkert að hafa þetta langt... ég er alveg með fullt af sögum en nenni ekki að vera að skrifa þær hér... (verð að hafa eitthvað að segja þegar ég hitti ykkur...:) )

Vildi bara minna alla á að reima á sig spariskóna um helgina því að það er MÖST.... :):):)

BLES :klikk:


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 17:35:34 / Kata

Stúdent....:)

Jæja búin að fá út úr prófunum og brilleraði alveg þó ég segi sjálf frá.... ég fékk að vísu ekki mætingareinkunn heldur var skellt á mig snyrtilegu spurningamerki þar....:lol: en það verður víst komið áður en ég veit að......

Síðustu daga er ég búin að vera á námskeiði upp í Reykjadal og ég verð að segja að mér líst bara vel á þetta.... fyrir utan örfá smá atriði en það er eitthvað sem maður verður bara að sætta sig við... Fólkið sem við Pálí erum að vinna með er virkilega hresst og ég sé að þetta á alveg eftir að vera gaman, fyrsta partýið er í kvöld sem þýðir að maður neyðist til að fá sér in a gleis....

En síðan er það bara fyrsta næturvaktin á föstudaginn, henni líkur klukkan 9 og svo á ég að vera mætt á útskriftina á laugardaginn klukkan 10:15.... sem er klárlega keppnis!! Síðan er það bara djamm um kvöldið og restin af vikunni eru næturvaktir.....

En síðasta helgi fór í metabókina þar sem það var djamm báða dagana og eftir svona langa pásu þá var það í erfiðari kantinum.... en maður mátti ekki sýna einhverja uppgjöf þannig að maður varð að reima á sig partý skóna aftur þrátt fyrir smá þynnku og mikla þreytu... prófin kláruðust á föstudaginn og Hrefna hélt smá bekkjarpartý og seinna um kvöldið skellti liðið sér yfir til Jóns og þeir allra hörðustu niðrí bæ (ég og nokkrir í viðbót).... Daginn eftir var komið að afmælinu hjá Nínu og Erlu, það var haldið á mango grill þar sem sílikonmótaðir ellismellir sörveruðu í glösin og seinna um kvöldið mættu fáklæddir kjánar til að dansa í búrum, en það partý var bara flopp í kringum okkar stemmningu þannig að gellurnar hrökkluðust fljótlega úr þessum búrum því að þetta var ekki alveg að gera sig..... en afmælið var mjög skemmtilegt og afmælisbörnin skemmtu sér betur en margir aðrir.... ;) hehe *myndirnar koma inn seinna þegar ég hef tíma og þolinmæði í að setja þær inn.....

Ein mynd af samstarfsfélaga (eins og sést þá skín af þeim hressleikinn)

En annars vil ég bara þakka öllum vinum mínum (smá hinum, ekki jafn mikið samt) fyrir frábær 4 ár þetta er búið að vera snilldartími... SÉRSTAKLEGA 4.bekkur sem toppaði allt:!: við hittumst bara á laugardaginn í þrusustemmningu og sýnum svo snilldar danstakta um kvöldið.....:)

Thank you very nice..... Katrín :klikk:


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 12:15:33 / Kata

Óformlega búin með þetta....

Síðasta stóra lestrarprófið var í dag og það er ekki hægt að lýsa tilfinningunni þegar maður labbaði út úr því.... ég veit ekki hvort að það var bara það að maður var nánast ekki búinn að sofa neitt og lesa yfir sig eða hvort að það var bara ánægjan við að komast út úr þessum leiðindum... en ég var að minnsta kosti sátt.... 8)

Helgin var vægast sagt mjög leiðileg fyrir utan kaffihúsaferð sem ég fór í með Pálí sem ég er nánast búin að lifa á síðan....:!: en nú fer að styttast í að maður geti farið að haga sér eðlilega og gert eitthvað annað en að hanga heima yfir bókunum... og ég get ekki beðið....:!::!: Núna eru bara 2 próf eftir og ef maður heldur rétt á spöðunum á þetta að vera komið í höfn.... :)

Bara svona rétt að minna á að það verður stemmning næsta föstudag og klárlega laugardeginum líka þannig að fólk skal ekki vera að leika sér að því að fara í sjúkrapróf, við erum með of stíf plön í að vera að missa eitthvað út....:!:

En jæja þetta er nóg í bili....

Kata :):):):):):):)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 11:17:03 / Kata

.....

Ahh íslenskan búin og núna eru 5 próf eftir.....:!:

samt hálf vandræðalegt að standa í þeirri meiningu allt prófið að maður hafi 3 tíma því að þetta sé 15 eininga stúdentspróf en fatta svo að korterið sem "allir hinir áttu eftir" var líka þinn tími.... 8|

Annars held ég að ég sé gott efni í rithöfund eða eitthvað þvíumlíkt þar sem ég bý yfir mikilli frásagnarhæfni (þá aðallega þegar kemur að því að frumsemja heilu og hálfu sögurnar út frá nafninu á þeim) ég get ekki lýst ánægju minni yfir því að þurfa aldrei að lesa ljóð eða skáldsögu tilneydd aftur, EF ég gef mér einhvern tíman tíma til þess þá verður það ekki bara gert í flýti valin stysta bókin (sem er oftar en ekki sú leiðilegasta) bara til að klára á vissum tíma.....

En nóg um það...... franska er næst og eins og manni er nú búið að hlakka til að fara að lesa eitthvað sem eru ekki bara utanaf lærdómur þá erum við nokkur sem þurfum að fara á námskeiðið lærðu frönsku á 2 dögum..... :$ en það er bara fyrir atvinnumenn og mjög hæpið að einhverjir viðvaningar þvælist inn á þá braut...

   

Fólk hefur margar leiðir til að trappa sig niður á milli prófa, sumir skella sér í pottinn með bjór og fínerí á meðan aðrir sitja á fundum með rektor yfir vafasömum einkunnum..... en það er allt gott og blessað og verður fólk bara að fá svigrúm til að gera það sem því sýnist.... eheh

Annar er þetta allt að styttast og þarnæsta föstudag má fólk búast við að sjá okkur MS inga rúllandi um götur bæjarins á smá skralli..... 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 23:54:16 / Kata

Eitt búið....


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 19:40:28 / Kata

Ónefnd færsla

Jæja núna er nokkrir tímar í fyrsta prófið mitt og ég er búin að eyða nánast öllum mínum stundum upp í skóla við að læra.... ég held án gríns að ég hafi ekki verið svona mikið á þessum forkunnar fagra stað alla önnina en eftir þessi próf á ég án gríns eftir að fara betur við skólan heldur en stólarnir..... það munaði minnstu að ég dytti í veikindi þar sem líkami minn þolir illa allt álag skólalega séð og ég má helst ekki heyra minnst á veikindi þá gríp ég þau í loftinu.... eina ástæðan fyrir því að ég hef haldist góð svona lengi er tirnan en hún hefur gert mér það kleift að vera meira á vappi um allt heldur en að hanga í tímum allan liðlangan daginn...  en ég sem sagt var komin á fremsta hlunn með þetta fyrir nokkru og er búin að lifa á lífrænt ræktuðum hálsbrjóstsykrum og öðrum óbjóði til að fá mig góða...

Það munaði nánast engu að ég Hrefna og Nína læstumst þarna inni til eilífðar nóns eða að minnsta kosti þangað til á morgun þegar við gleymdumst inn í matsal og vorum læstar inni... við gátum ekki spurt til vegar þar sem eina eftirlifandi fólkið þarna voru pólverjarnir sem skúra þarna og það eina sem þau gerðu var að kreista upp vandræðalegt bros og hlæja þegar við vorum á barmi taugaáfalls í leit að útgönguleið.....:!:

En ég er búin að gera mér grein fyrir því að við krakkarnir í C og D bekknum erum miklir námsmenn og fram yfir allt félagsverur og er þessi lærdómstími búinn að vera furðu skemmilegur miðað við það að maður má tala í 10 mín á klukkutíma eða eitthvað..... og sá tími er vel nýttur.... annars fékkum við námseinkunnirnar í dag og þær voru mismjög góðar, sem þýðir að maður er búinn að ná matinu í öllu að minnsta kosti... sem er ekki svo slæmt ef út í þá sálma er farið....

en jæja núna er ég búin að fá smá útrás fyrir því að tala og get því sökkt mér í þetta aftur.... (það besta við þessi próf er samt að maður getur hugsað ÞETTA Á ÉG ALDREI AFTUR EFTIR AÐ ÞURFA AÐ LÆRA, sem er mjög hvetjandi)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 12:58:48 / Kata

3 vikur í frí!!

Tirnan er tilbúin:!::!::!:

Eða hún er allavegana að fara í prentun... :) ég get ekki lýst hversu mikill léttir það var að klára epilogusinn og senda síðustu greinarnar á hann Gunna í dag, það lá við að maður felldi tár....

Núna á ég bara eftir 2 verkefni og þá er síðustu önninni minni lokið í MS, þau hefðu verið helmingi færri hefði 30% ungmenningarverkefnið hjá okkur stelpunum gegnið upp eins og við ætluðum okkur.  En við vorum búnar að fresta því fram á síðasta dag af því að þetta átti ekki að vera neitt einasta mál, þegar við komum saman með strákústa og sagir og alls konar tillfallandi drasl sem við fundum í bílskúrnum hjá henni Hrefnu sáum við að við vorum ekki að búa til lag heldur einfaldlega hávaða, þannig að við breyttum snögglega um stefnu og erum að semja ljóðabók....

Ég er farin að sjá það að MS-ingar eru upprennandi ljóðskáld upp til hópa og grípa þeir til þessara hæfileika óspart til að redda sér á ýmsan hátt... hehe 8)

En yfir í annað, núna eru 6 dagar í fyrsta prófið mitt og maður veit eiginlega varla hvernig maður á að haga sér.... þetta er mjög óraunverulegt að það sé komið að þessu... sama hvernig það á eftir að fara....

það eiga samt allir eftir að vera svona ánægðir eins og þessi ef þeir ná... :)

En ég er bara með ein skilaboð til þeirra sem eru á nálum yfir því að vera á mörkunum:

If you´re standing on thin ice you might as well dance:!:

EN nóg um alla fróðleiksmola og annað, gagni ykkur öllum vel í prófunum, ég á kannski eftir að skrifa hérna þegar ég er komin á vonar völina

þangað til næst:)

bles...


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
maí - 2012
S M Þ M F F L
12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031
FyrriNæsti